

Það var ýmislegt áhugavert í gangi á bílnum og ansi þétt útköll. Eitt útkallið fólst í því að sækja sjúkling á þyrlustæðið rétt við sjúkrahúsið og flytja á slysadeildina en í staðinn fyrir að fara með á deildina fékk ég að fara smá rúnt í þyrlunni. Útsýnið var hreint út sagt magnað og ekki skemmdi fyrir að það var alveg heiðskýrt og sól. Ég hafði aldrei setið í þyrlu áður þannig að þetta var alveg frábært! Sendi pabba sms áður og mig grunar að hann hafi fengið aðeins í hnén við tilhugsunina um þyrluna ;)
Þegar ég kom heim af sjúkrabílnum beið mín pakki frá Margréti systur sem innihélt páskaegg og nammi! Páskaeggið var reyndar í frumeindum en það verður þá bara minni vinna við að borða það ;) Takk fyrir okkur Margrét! Einar ljómaði eins og sólin þegar við opnuðum pakkann. Litli nammigrísinn. En það var ekki bara pakki sem beið mín þegar ég kom heim heldur hafði Einar keypt handa mér risastóran rósavönd sem stóð á borðinu þegar ég opnaði hurðina. Hann er svo sætur þessi elska!
Við Einar fórum svo út að borða á sushi stað hérna í bænum og borðuðum mjög góðan mat. Einn rétturinn var krabbi í mjúkri skel sem maður beit bara í og borðaði skelina með. Magnað! Við horfðum einnig á sushi kokkinn búa til eina rúlluna okkar og það verður að viðurkennast að hann var ögn öruggari við þetta en við Margrét þegar við höfum verið að dunda okkur við sushigerð heima. Isss, við verðum orðnar svona eftir smá tíma....
Á leiðinni heim settumst við inn á Starbucks og fengum okkur espresso og rosalega franska súkkulaðiköku með rjóma (mamma, það var örugglega meiri rjómi en kaka!)
Við ætlum svo bara að slappa af, horfa á video og kannski aðeins að kynna okkur innihald páskaeggsins... má það ekki fyrst það brotnaði??
Vona að þið hafið öll átt góðan dag líka.
Kveðja,
Guðrún

3 comments:
Greinilega spennandi dagur.
Gangi þér vel að fá eitthvað af páskaegginu ;o)
Magnað:-) Það er örugglega frábært að ferðast með þyrlu í góðu veðri. Þetta verður orðin meiri ævintýradvölin þarna hjá ykkur.
Torfuneskveðjur.
Bilda.
vá þetta hefur verið geggjaður dagur
kv
gsm
Post a Comment