Friday, March 7, 2008

Golfvellirnir hans Einars :)

Einar og Dave frá Skotlandi fóru saman á Russley golfvöllinn í gær og spiluðu þar í frábæru veðri.

Set hérna inn heimasíðurnar fyrir skemmtilegustu vellina hérna í kring fyrir þá sem hafa áhuga:

http://www.clearwaternz.com/
http://www.russleygolfclub.co.nz/
http://www.terracedowns.co.nz/
http://www.millbrook.co.nz/golf.php
http://www.christchurchgolf.co.nz/

Góður dagur

Þetta verður að teljast sem einn af mínum uppáhalds dögum. Mætti á slysadeildina í morgun en í staðinn fyrir að vera áfram þar reddaði Hilmar því að ég fengi að fylgjast með á sjúkrabílnum í dag. Ég fór með sjúkraflutninga- mönnunum af deildinni upp úr hálf níu og snérist með þeim um bæinn til hálf sjö. Fyrsta stoppið okkar var reyndar á Starbucks þar sem mér var boðið upp á kaffi og ég sá strax að ég gæti alveg hugsað mér að eyða deginum með þessum mönnum!

Það eru engir læknar á sjúkrabílunum hér og er þjónustunni sinnt af St John samtökunum. Sjúkraflutningamennirnir eru paramedics eða advanced paramedics en starfsemin byggir einnig að stórum hluta á þjálfuðum sjálfboðaliðum sem fara í útköll með paramedic.

Það var ýmislegt áhugavert í gangi á bílnum og ansi þétt útköll. Eitt útkallið fólst í því að sækja sjúkling á þyrlustæðið rétt við sjúkrahúsið og flytja á slysadeildina en í staðinn fyrir að fara með á deildina fékk ég að fara smá rúnt í þyrlunni. Útsýnið var hreint út sagt magnað og ekki skemmdi fyrir að það var alveg heiðskýrt og sól. Ég hafði aldrei setið í þyrlu áður þannig að þetta var alveg frábært! Sendi pabba sms áður og mig grunar að hann hafi fengið aðeins í hnén við tilhugsunina um þyrluna ;)

Þegar ég kom heim af sjúkrabílnum beið mín pakki frá Margréti systur sem innihélt páskaegg og nammi! Páskaeggið var reyndar í frumeindum en það verður þá bara minni vinna við að borða það ;) Takk fyrir okkur Margrét! Einar ljómaði eins og sólin þegar við opnuðum pakkann. Litli nammigrísinn. En það var ekki bara pakki sem beið mín þegar ég kom heim heldur hafði Einar keypt handa mér risastóran rósavönd sem stóð á borðinu þegar ég opnaði hurðina. Hann er svo sætur þessi elska!

Við Einar fórum svo út að borða á sushi stað hérna í bænum og borðuðum mjög góðan mat. Einn rétturinn var krabbi í mjúkri skel sem maður beit bara í og borðaði skelina með. Magnað! Við horfðum einnig á sushi kokkinn búa til eina rúlluna okkar og það verður að viðurkennast að hann var ögn öruggari við þetta en við Margrét þegar við höfum verið að dunda okkur við sushigerð heima. Isss, við verðum orðnar svona eftir smá tíma....

Á leiðinni heim settumst við inn á Starbucks og fengum okkur espresso og rosalega franska súkkulaðiköku með rjóma (mamma, það var örugglega meiri rjómi en kaka!)

Við ætlum svo bara að slappa af, horfa á video og kannski aðeins að kynna okkur innihald páskaeggsins... má það ekki fyrst það brotnaði??

Vona að þið hafið öll átt góðan dag líka.

Kveðja,
Guðrún

Saturday, March 1, 2008

Kínversk ljósahátíð
















Hérna koma nokkrar myndir af ljósahátíðinni í garðinum sem við fórum á í dag. Þetta var í tilefni kínverska nýársins.


















Clearwater golfvöllurinn












Í gær spilaði Einar golf á Clearwater golfvellinum sem er talinn vera með bestu völlunum hérna á Nýja Sjálandi. Hann hafði kynnst skota á Hagley golfvellinum sem er hér rétt hjá okkur og þeir ákveðið að fara saman og spila á Clearwater. Með í för var svo ljósmyndarinn Bjartmar :) Set inn nokkrar myndir af vellinum hér fyrir neðan. Efsta myndin hérna er af klúbbhúsinu.










Muuuuu.....

Jæja, við dundum okkur við ýmislegt svona á frídögum..... Í dag buðum við Sirrý og Bjartmari í mat og ákváðum að koma þeim á óvart og klæðast "sparifötum" í tilefni dagsins ;) Þessir búningar eru tileinkaðir Þrúði og voru sérstaklega hugsaðir til að hressa hana við! Við fórum svo og skoðuðum okkur um á kínverskri ljósahátíð en það var búið að skreyta garðinn rétt hjá okkur með kínverskum ljósafígúrum og ýmislegt skemmtilegt í boði. Því miður rigndi ansi hressilega og það eyðilagði aðeins skemmtunina. Við enduðum kvöldið á því að fara á There will be blood í bíó, áhugaverð mynd þar á ferð!

Hafið það sem best :)

G + E
















Halló Þrúður!












Wednesday, February 27, 2008

Shootover jetboat





Hérna kemur myndband úr bátsferðinni sem við fórum í í Queenstown. Þetta er svo sem ekki alveg eins spennandi og river surfing en var mjög gaman samt. Bjartmar á að sjálfsögðu heiðurinn á að koma þessu á rétt form til að setja hér inn. Takk aftur Bjarti :)

Tuesday, February 26, 2008

Þetta tókst!

Bjartmar er flinkur tölvukarl! Takk fyrir hjálpina Bjarti :)
heimsóknir