Tuesday, March 18, 2008

Kveðjum Christchurch

Jæja, þá er komið að því. Við erum á leiðinni út á flugvöll en þaðan munum við fljúga til Auckland sem er ofarlega á norður eyjunni. Við verðum í Auckland í einn dag og fljúgum svo til pabba, Steinars og Sid í LA. Við verðum þar fram yfir páskahelgina og leggjum svo í hann heim :)

Takk fyrir að lesa bloggið okkar og setja inn athugasemdir. Það var alltaf jafn gaman að sjá þær og gott að vita að það var verið að fylgjast með okkur :)

Bestu kveðjur,
Guðrún og Einar

2 comments:

Anonymous said...

Góða ferð krakkar og hafið það gott í LA. Hlakka ógeðslega mikið til að sjá ykkur, brún og sælleg eftir ævintýrin hinu megin á hnettinum :)
Vonandi kemur eins og ein færsla frá Bandaríkjunum.

Kv. Erla.

Anonymous said...

Vá, er þetta virkilega búið hjá ykkur þarna á Nýja-Sjáland? Djö.. líður tíminn hratt. Er búin að hafa mikið gaman af því að lesa ævintýrafærslurnar ykkar (þó ég sé ekki aktívasti kommentarinn). SKemmtið ykkur vel í USA :)

heimsóknir